Aðalstein Svan Hjelm grunaði að eitthvað misjafnt væri á seyði þegar hann var látinn borga 16 þúsund krónur í aukagjald fyrir tvær handfarangurstöskur sem hann fór með í flug með EasyJet.Eftir marga mánuði af samskiptum og kæruferlum af ýmsum toga vann Aðalsteinn fullnaðarsigur og fékk gjaldið endurgreitt. „Ég skemmti mér bara konunglega í gegnum þetta allt saman,“ segir hann í samtali við fréttastofu.Aðalsteinn er vanur að fljúga með sömu handfarangurstösku og hefur aldrei lent í vandræðum. Þegar hann og konan hans voru á leið í flug frá Gatwick flugvelli með EasyJet voru hjónin stöðvuð og beðin um að setja töskurnar sínar í málmgrind til að athuga hvort þær uppfylltu reglur flugfélagsins um stærð handfarangurs. ÞEKKIR TÖSKUNA ÁGÆTLEGA Aðalsteinn segist hafa ferðast vítt og breitt um h