Er frjáls ferða sinna í bili og ætlar að áfrýja

Dómur féll í Edition-málinu svokallaða í dag. Ming Ting Mancel hlaut tólf ára fangelsisdóm. Hún var ákærð fyrir manndráp í samverknaði við eiginmann sinn og brot í nánu sambandi.Forsendur dómsins liggja ekki fyrir þar til dómurinn hefur verið birtur.Ming Ting Mancel sem var dæmd í tólf ára fangelsi í dag hyggst áfrýja dómnum til Landsréttar. Mancel yfirgaf dómsalinn að uppkvaðningu lokinni, hvorki í gæsluvarðhaldi né farbanni.Verjandi Mancel, Ómar Örn Bjarnþórsson, segir dóminn þyngri en hann hafi búist við. Mancel hafi strax ákveðið að áfrýja honum.Hann segir Mancel hafa yfirgefið dómshúsið að uppkvaðningu lokinni. Hún sé eins og er hvorki í gæsluvarðhaldi né í farbanni.„En það kæmi mér ekkert á óvart ef það yrði farið fram á gæsluvarðhald á meðan á áfrýjunarfresti stendur, en sækjandi te
Er frjáls ferða sinna í bili og ætlar að áfrýja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd