Fulltrúar 66% aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins eru andvígir aðild að ESB en fulltrúar 22% hlynntir. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var fyrir Samtök atvinnulífsins.Andstaða eykst frá síðustu könnun SA, en þá sögðust 60% andvíg.Þá var spurt út í viðhorf fulltrúanna til upptöku evru, en alls sögðust 54% andvíg og 36% hlynnt.Þátttakendur voru beðnir um að merkja við þá þætti sem þeir teldu ráða mestu um afstöðuna. Flestir völdu fullveldi (26%), auðlindamál (19%) og vaxtastig og verðbólgu (16%).Andstaðan nær til allra stærðarflokka fyrirtækja. Þó er stuðningur áberandi mestur í flokki fyrirtækja með veltu á bilinu 100–199 milljónir króna. Þar sögðust fulltrúar 39% fyrirtækja vera hlynntir aðild en 39% andvígir. Þegar litið er til stærstu fyrirtækja landsins, með ársveltu yfir 2,5 m