Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu svokallaða. Hún var ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi, með því að verða 29 ára gamalli dóttur sinni að bana á hótelherbergi á Reykjavík Edition í miðbæ Reykjavíkur milli 13. og 14. júní í fyrra.