Sláturtíð hefst eftir nokkrar vikur og Kjarnafæði Norðlenska á von á ríflega 100 erlendum farandverkamönnum til vinnu á Húsavík. Sláturtíðinni fylgir mikið umfang en fyrirtækið sér um að útvega starfsfólkinu húsnæði meðan á sláturtíðinni stendur. Hópurinn setur svip sinn á bæjarlífið á Húsavík.„Undirbúningur er hafinn fyrir nokkru síðan. Við byrjum hreinlega að hugsa um þetta í febrúar. Það er svona 70-80% af þeim sem hafa komið áður til okkar. Það eru bæði sérhæfð störf og almenn störf og við erum heppin með það að fólk kemur ár eftir ár bæði í þessi sérhæfðu og almennu störf,“ segir Jóna Jónsdóttir, mannauðsstjóri Kjarnafæðis Norðlenska. ÞARF SÉRSTAKT ATVINNU- OG DVALARLEYFI FYRIR BRETA Stærstur hluti verkamannanna kemur frá Mið-Evrópu og Bretlandi. Bretar voru í meirihluta áður fyrr