Landhelgisgæslan gerði ítrekaðar tilraunir til að ná í Bandero

Áhöfn um borð í flugvél Landhelgisgæslunnar kallaði ítrekað til áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, í gær – en fékk engin svör. Gæslan var í eftirlitsflugi yfir hafsvæðinu. Vísir greindi fyrst frá.Bandero-skipið hefur verið í íslenskri efnahagslögsögu í þeim yfirlýsta tilgangi að fylgjast með og stöðva hvalveiðar. Samtökin segja í færslu á Facebook-reikningi sínum í gær að Landhelgisgæslan hafi haft afskipti af þeim. „ÞAU SÁU OKKUR“ Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, segir það daglegt brauð að fljúga yfir skip og tala við þau í gegnum rás 16, sem skip eigi öllu jafna að hafa talstöðvar sínar stilltar á. Skipum beri skylda til þess að svara kalli Gæslunnar.Spurður hvers vegna áhöfn Bandero hafi ekki svarað kveðst Magnús ekkert geta fullyrt um það. Það sé
Landhelgisgæslan gerði ítrekaðar tilraunir til að ná í Bandero

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd