Jarðskjálfti af stærðinni 7,1 reið yfir Kyushu, þriðju stærstu eyju Japans, upp úr klukkan 16 á staðartíma – snemma í morgun að íslenskum tíma.Kyushu-eyja er sú syðsta og vestlægasta af fjórum höfuðeyjum Japans. Þar búa rúmlega 12 milljónir manna. Kumamoto-hérað eyjunnar varð einna verst út úr skjálftanum í morgun. Önnur hæð verslunarmiðstöðvar hrundi í bænum Kashima. Í tilkynningu slökkviliðsins í Kashima segir að fjöldi fólks sé fastur í rústunum. Upplýsingar um ástand fólksins liggja ekki fyrir.Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá upptökur frá nokkrum sjónarhornum þegar skjálftinn reið yfir:Japönsk stjórnvöld vinna við að meta umfang meiðsla og eignatjóns eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,1 reið yfir þriðju stærstu eyju landsins í morgun. Fjöldi fólks situr fastur í verslunarmiðstöð ef