Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason segist hættur að gigga fyrir aðra og muni héðan í frá einungis koma fram á sínum eigin tónleikum. Ekki sé um markaðstrix að ræða og hann vinni nú að því að afbóka sig á öll gigg næstu misseri. Patrik vakti athygli um helgina í partýi Patreks Jaime fyrir að bauna á fólk úr bransanum og lýsa því yfir að þjóðhátíðarlag Herra hnetusmjörs og Birgittu Haukdal væri rusl.