Stukku fram af Geimnálinni

Lögreglan í Seattle í Bandaríkjunum leitar tveggja manna sem klifruðu yfir glervegg á toppi Geimnálarinnar og stukku fram af turninum. Nálin er 184 metrar að hæð en mennirnir voru með fallhlífar og svifu til jarðar. Lögreglan segir mennina standa frammi fyrir kærum um ólöglegt athæfi með því að hafa farið inn á bannsvæði.
Stukku fram af Geimnálinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd