Von á hellidembum og jafnvel eldingum

Dálítil lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi gefa fremur hæga norðanátt á landinu í dag. Það verður skýjað að mestu á norðan- og austanverðu landinu og lítilsháttar væta öðru hvoru, en annars víða bjartviðri og stöku skúrir eftir hádegi, jafnvel hellidembur á stöku stað.Það verður bjart með köflum á vestanverðu landinu, en stöku skúradembur síðdegis og jafnvel eldingar, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun verður áfram norðlæg átt, víða gola eða kaldi, en strekkingur austast. Dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi og fremur svalt í veðri, en bjart með köflum sunnan- og vestantil og allhlýtt. Hiti 6 til 17 stig, mildast á Suður- og Vesturlandi.Áfram er útlit fyrir norðlægar áttir með vætusömu og svölu veðri fyrir norðan og austan, en lengst af þurru og mi
Von á hellidembum og jafnvel eldingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd