Tekinn á 144 kílómetra hraða innan höfuðborgarsvæðisins

Lögregluþjónn úr umferðardeild á mótórhjóli.Ruv.is / Anton BrinkLögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði nokkra ökumenn fyrir akstur langt yfir leyfilegum hámarkshraða í kvöld og nótt.Lögregluþjónar á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ, stöðvuðu bílstjóra sem ók á 144 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80. Annar ók á 108 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60.Í austurhluta umdæmisins voru tveir ökumenn teknir á yfir 120 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80.
Tekinn á 144 kílómetra hraða innan höfuðborgarsvæðisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd