Jarðskjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbunguöskjunni klukkan 5:36 í morgun.Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálfta af þessari stærðargráðu verða reglulega í Bárðarbungu. Síðustu tvö til þrjú árin hafi liðið um tveir til þrír mánuðir að jafnaði á milli skjálftanna.Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu 13. júní og fyrir það í lok janúar.Sigríður segir engin merki um gosóróa. Bárðarbunguaskjan sé að fyllast af kviku og að trekkjast upp eftir Holuhraunsgosið sem varð á árunum 2014–15. Af þeim sem sökum verða skjálftar sem þessi reglulega.Fréttin hefur verið uppfærð.