Drónar Úkraínuhers.EPA / Maria SenovillaNærri fjögur hudruð drónum Úkraínuhers var beint að Moskvu-héraði í Rússlandi í nótt. Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu, segir í tilkynningu á Telegram að flestir drónarnir hafi verið skotnir niður, þar á meðal 81 dróni sem stefndi á höfuðborgina. Héraðsstjórinn Andrey Vorobyov greindi frá því að fjölbýlishús hefðu orðið fyrir skemmdum á tveimur stöðum í héraðinu. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni.Volodymyr Zelensky er í Washington. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta síðar í dag.