Lyfjarisi samþykkir að greiða milljarða sáttagreiðslur

Bandaríski lyfja- og snyrtivöruframleiðandinn Johnson & Johnson hyggst greiða samtals 5,5 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar nærri 700 milljörðum króna, í sáttagreiðslur til að greiða úr tugum þúsunda lögsókna á hendur fyrirtækinu.Málaferlin hafa staðið yfir í meira en áratug en því hefur verið haldið fram að barnapúður og aðrar vörur fyrirtækisins sem innihalda talk hafi valdið eggjastokkakrabbameinum.Sáttagerðin nær til nær allra 76 þúsund lögsóknanna sem hafa verið höfðaðar á hendur fyrirtækinu. Það hafði áður náð dómssátt í málum sem sneru að því hvort talk í vörum fyrirtækisins innihéldi asbest og ylli krabbameini í lungum.Til þess að sáttin nái fram að ganga þurfa 95% stefnenda að samþykkja sáttagreiðsluna. Lögmannsstofur þeirra segja þetta vera farsæla lausn á langri deilu. V
Lyfjarisi samþykkir að greiða milljarða sáttagreiðslur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd