Í garð er gengið síðasta sumarið af fornleifauppgreftri á Höfnum á Skaga við Skagaströnd. Ýmislegt merkilegt hefur komið í ljós við rannsóknirnar. Hópur fornleifafræðinga grefur upp verbúðir sem stóðu þar allt frá elleftu öld fram á þá átjándu. Verkefnið er mjög umfangsmikið enda svæðið stórt.Mikið hefur fundist af alls konar hlutum, bæði úrgangi og persónulegum munum.„Persónulegir munir, eins og kambar, teningar, taflmenn og náttúrulega síðasti skemmtilegi fundurinn okkar var þessi forláta mynt,“ segir Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur.Myntin sem Lísabet talar um er talin vera frá tímum Ólafs kyrra Noregskonungs, sem réð yfir Noregi frá 1067. Munirnir sem finnast við uppgröftinn enda flestir á Þjóðminjasafninu. Þeir segja mikla sögu og geta gefið góða mynd af lífinu á Skaga frá fo