Þegar blaðamaður Morgunblaðsins fór á Höfn í Hornafirði á dögunum setti hann sig í samband við fréttaritara blaðsins á staðnum og fékk höfðinglegar móttökur hjá Albert Eymundssyni, sem var þar áður bæjarstjóri og skólastjóri. Hann keyrði með blaðamann um og fræddi í leiðinni um plássið og þær breytingar sem þar hafa orðið í áranna rás.