Að minnsta kosti 624 bandarískir hermenn hafa særst og 18 látist frá því Donald Trump fyrirskipaði árásir á Íran í febrúar. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu, Pentagon.Í apríl undirrituðu Bandaríkin og Íran vopnahléssamkomulag en þrátt fyrir samninginn hafa árásir haldið áfram linnulaust og vopnahlé ítrekað verið rofið. Þann 7. júlí hófust þó átökin aftur af fullum þunga og 8. júlí lýsti Donald Trump því svo yfir að vopnahléinu væri lokið. Samninganefndir ríkjanna gætu áfram rætt saman en að hans mati væru þær einungis að sóa tíma sínum. TALAN HÆKKUÐ OG SVO LÆKKUÐ Samkvæmt nýjum tölum Pentagon sem birtar voru um helgina létu 18 bandarískir hermenn lífið í hernaðaraðgerðinni „Epic Fury,“ eða innrás Bandaríkjanna í Íran. Sú tala var þó leiðrétt stut