Veðurblíðunnar notið í Nauthólsvík

Sólin lét sjá sig á suðvesturhorninu í dag og var fjöldi fólks sem lagði leið sína í Nauthólsvík til þess að njóta hennar.Sumir færðu hreinlega vinnustaðinn út til að geta notið dagsins.„Það er fundur eftir nokkrar mínútur, ég þarf að taka hann í bílnum,“ sagði einn viðmælandi í kvöldfréttum RÚV sem naut sólskinsins á vinnutíma, en bætti við að góður velvilji væri fyrir því að fólk skreppi út í sólina milli funda.Ekki flatmöguðu allir í sólinni. Þjálfarar á námskeiði Brokeyjar höfðu í nógu að snúast og voru að æfa sig í að sigla og sammæltust um að mun skemmtilegra væri að vinna í sólinni en í rigningu.Á ströndinni flugu frisbídiskar og blakboltar um loftið og krakkar á öllum aldri busluðu í sjónum.
Veðurblíðunnar notið í Nauthólsvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd