Einn lést og sextán særðust í árás á hinsegin daga í Berlín á laugardaginn. Borgarstjóri Amsterdam tilkynnti í gær að það yrði strangari öryggisgæsla á Hinsegin dögum í borginni og skipuleggjendur hátíðarinnar í Prag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir ítreka að öryggi þátttakenda verði í öndvegi.Hinsegin dagar á Íslandi eru 4.–9. ágúst og gleðigangan verður 8. ágúst.Í skriflegu svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu segir að áhættumat sé til endurskoðunar í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Ekki liggi fyrir hvort breytingar verði gerðar á því. HRÆÐILEGT HRYÐJUVERK Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, segir árásina hræðilegt hryðjuverk og segir stjórnendur hátíðarinnar á Íslandi hafa sent samúðarkveðjur til Þýskalands.Hún skilji að árásin