Reiknað er með metfjölda gesta á fjölskylduhátíðina Eina með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina. Miðasala á stórtónleika á laugardagskvöld gengur vonum framar að sögn skipuleggjenda.„Miðasala keyrist bara hærra og hærra og við erum að sjá töluvert betri tölur en í fyrra. Já þúsundir miða, ætli við förum ekki í tuginn jú. Við erum að vonast eftir því og á góðri leið með það,“ segir Halldór Kristinn Harðarson, einn af skipuleggjendum Einnar með öllu á Akureyri, sem hefur tvöfaldað gæsluna hjá sér miðað við fyrri ár. „Það var sett af stað forvarnarteymi. Það hefur unnið með lýðheilsusviði Akureyrarbæjar, barnavernd, foreldrum og flakkandi félagsmiðstöð. Við erum bara búnir að setja allt í gang,“ segir Halldór. VIRK Á SAMFÉLAGSMIÐLUM Akureyrarbær hefur verið virkur á samfélagsmiðlum a