Rúmlega 400 manns hafa skilað sínu atkvæði í kjörkassann

Rúmlega 400 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í morgun. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir aðsóknina mikla.Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir aðsóknina góða, mun fleiri hafi greitt atkvæði en búist var við á fyrsta degi. 266 hafa greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í dag, það eru rúmlegar fimm sinnum fleiri samanborið við fyrsta dag utankjörfundaratkvæðagreiðslu sveitarstjórnarkosninganna í vor en aðeins 52 höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar á fyrsta degi í vor.„Þannig að menn hafa áhuga á þessum kosningum og við erum með opið núna í fimm vikur fyrir kjördag. Venjulega er þetta fjórum vikum fyrir kjördag, þannig að það má segja að kosningin
Rúmlega 400 manns hafa skilað sínu atkvæði í kjörkassann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd