Forstjóri tæknirisa sem framleiðir örflögur fyrir gervigreindariðnað hafði betur þegar dómstóll lækkaði greiðslur til eiginkonu hans um tvo þriðju í því sem suðurkóreskir fjölmiðlar hafa nefnt skilnað aldarinnar. Hann þarfChey Tae-won og Roh Soh-yeong virtust lengi vera fyrirmyndarhjón í suðurkóresku viðskiptalífi með hundruð milljarða umleikis og í áberandi stöðum, hann forstjóri stórfyrirtækis sem framleiðir örflögur fyrir gervigreindariðnað, hún dóttir fyrrverandi forseta landsins.Þau giftust 1988 en síðasti rúmlega áratuginn hefur samskiptum þeirra að miklu leyti verið varið frammi fyrir dómstólum þar sem þau deila um hvernig skipta eigi eignum við skilnað, enda er mikið í húfi. Hlutabréf Cheys í örflöguframleiðandanum SK hynix eru metin á fimm og hálfan milljarð bandaríkjadala, andvir