Illa gengur að ná tökum á skógareldum í Frakklandi

Innanríkisráðherra Frakklands segir slökkviliðsmenn standa frammi fyrir „fordæmalausum aðstæðum“ í Gironde-héraði þar sem skógareldar geisa. Frakklandsforseti boðaði ríkisstjórn sína á neyðarfund í dag vegna eldanna og hitabylgju sem færist yfir landið á næstu dögum.Um 40 þúsund hektarar af landi, svæði sem nemur um 56.000 fótboltavöllum, hafa þegar orðið eldinum að bráð í Gironde-héraði, um fimmtán kílómetra suður af borginni Bordeaux. Í Gironde búa um 850 þúsund manns en á fjórða hundrað þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. EFAST UM HVORT MANNAFLI OG BÚNAÐUR DUGI TIL Eldurinn breiddist lítið út í nótt eftir að rigna tók og vind lægði. Eldurinn hefur verið svo sterkur að yfir honum myndaðist eins konar eldingaský. Slík veðurfyrirbæri verða til þegar mikill hiti þeyt
Illa gengur að ná tökum á skógareldum í Frakklandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd