Ingibjörg Davíðsdóttir, þingkona Miðflokksins, segir það „falsfrétt“, „óhróður“ og „upplýsingaóreiðu“ að hún vilji bera aðild Íslands að Evrópusambandinu undir Bandaríkin. Heimildin fjallaði í gær um myndband sem Miðflokkurinn birti með skilaboðum Ingibjargar, sem vísaði til 25 ára reynslu í utanríkisþjónustunni, og varaði við aðildarviðræðum við ESB með deilitextanum „Ef þér er annt um öryggi og varnir Íslands, þá ert þú ekki...