Viðbúnaður eftir handtöku nærri Kastrup-flugvelli

Lögreglan í Danmörku handtók í dag mann vegna gruns um vopnaburð nærri Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglu bárust tilkynningar um að sést hefði til manns með hlut í fórum sínum sem líktist skammbyssu.Þetta staðfestir Rune Nørgaard, varðstjóri hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn, í samtali við Ekstra Bladet.Nørgaard leggur áherslu á að engin hætta sé, eða hafi verið, á ferðum fyrir vegfarendur eða farþega á flugvellinum vegna atviksins. Lögregla er með mikinn viðbúnað og vinnur að rannsókn málsins.Maðurinn var handtekinn skammt frá flugvellinum, nærri Circle K-bensínstöðinni við Kystvejen.Lögregla getur ekki staðfest að maðurinn hafi verið vopnaður en staðfestir að hann hafi verið handtekinn. Hann er búsettur í Danmörku en er ekki danskur ríkisborgari.
Viðbúnaður eftir handtöku nærri Kastrup-flugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd