Matvælastofnun varar við fæðubótarefninu Codeage Liposomal NMN sem fyrirtækið Mamma veit best ehf. flytur inn og selur. Í fæðubótarefninu er ólöglegt nýfæði, nikótínamíð mónonúkleótíð (NMT).Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna eiga að hætta notkun hennar og farga eða skila henni aftur í verslunina.Þá varar MAST einnig við neyslu á einni framleiðslulotu af Royal Orient Palm sugar frá Asia Express Food sem Lagsmaður/Fiska.is flytur inn og selur. Ástæðan er vanmerking á innihaldslýsingu á súlfíti sem er ofnæmis- og óþolsvaldur. Magn af súlfíti er yfir leyfilegum hámarksmörkum.Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila í verslun Fiska á Nýbýlavegi 6, Kópavogi.Tilkynning kom til Íslands í gegnum RASFF, evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður. Fiska.is hefur innkallað