Um tvær milljónir manna horfðu á stolna útgáfu af kvikmyndinni The Oddyssey þegar henni var lekið á samfélagsmiðlinum X um helgina. Framleiðendur vilja að fólk horfi á myndina í kvikmyndahúsum.Fram kemur í frétt Variety að færsla á X, þar sem finna mátti myndina í heild sinni í háum gæðum, hafi fengið 2,1 milljón áhorfa á tveimur og hálfri klukkustund á laugardag. Aðganginum sem birti myndina var síðan lokað.Christopher Nolan leikstýrir myndinni sem er þrjár klukkustundir að lengd. Hún er tekin upp á IMAX-myndavélar en í þeim er 70 millímetra filma með háskerpuupptöku sem er sérstaklega ætluð fyrir stóra kvikmyndasali. TELJA LEKANN EKKI HAFA ÁHRIF Á MIÐASÖLU MYNDARINNAR Ódysseifskviða Nolan er sú fyrsta sem tekin er alfarið upp með IMAX-myndavélum. Það kom því mörgum notendum X í opna s