Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, boðar hert viðurlög í kjölfar árásarinnar á Christopher Street Day, sem tengist hinsegin dögum, í Berlín um helgina. Hann segir stjórnvöld verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að takmarka ferðafrelsi einstaklinga á borð við manninn sem ók bíl inn í mannfjölda með þeim afleiðingum að ein kona lést og 29 særðust.Ef ekki sé unnt að úrskurða slíka einstaklinga í gæsluvarðhald verði að gera allt sem réttarríkið heimili til að takmarka ferðafrelsi þeirra sem teljast hugsanlegir eða raunverulegir brotamenn og ógn við samfélagið.Ekki sé hægt að svipta einstakling þýskum ríkisborgararétti ef það er eina ríkisfang hans, eins og á við um manninn sem grunaður er um árásina um helgina.Merz telur hins vegar vel mögulegt að svipta tvöfalda ríkisborgara þý