Héraðssaksóknari hefur ákveðið að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjartalæknis til Landsréttar. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Mbl.is greindi fyrst frá.Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019.Málinu var vísað frá á þeim grundvelli að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað með sviptingu lækningaleyfis árið 2021. Þar reyndi á ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsingu. Samkvæmt reglunni má ekki refsa fólki tvívegis eða gera því að sæta tvöfaldri málsmeðferð vegna sama máls.Skúli Tómas endurheimti lækningaleyfið 2024 og í fréttum í gær kom f