Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir útkalli sem barst um klukkan hálf eitt vegna slasaðs manns á Esjunni.Samkvæmt slökkviliðinu virðist maðurinn ekki alvarlega slasaður en getur ekki gengið óstuddur.Erfitt var að komast að hinum slasaða og mikið brattlent. Björgunarsveitir aðstoðuðu slökkvilið sem vinnur nú að því að færa hinn slasaða að sjúkrabíl.RÚV / Ragnar Visage