Kæra frávísun í máli Skúla Tómasar

Héraðssaksóknari hefur ákveðið að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjartalæknis til Landsréttar. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Mbl.is greindi fyrst frá.Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019.Málinu var vísað frá á þeim grundvelli að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað með sviptingu læknaleyfis árið 2021. Þar reyndi á ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsingu. Samkvæmt reglunni má ekki refsa fólki tvívegis eða gera því að sæta tvöfaldri málsmeðferð vegna sama máls.Skúli Tómas endurheimti leyfið árið 2024 og fram kom í fréttum
Kæra frávísun í máli Skúla Tómasar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd