Erfitt er að segja til um hvort stór jarðskjálfti við Nesjavelli í nótt sé fyrirboði um eitthvað meira, segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.Skjálftinn, sem var 4,1 að stærð, varð við Nesjavelli þegar klukkuna vantaði tuttugu og fjórar mínútur í eitt í nótt. Nákvæm upptök hans eru 3,5 kílómetra norðaustur af Skeggja í Hengli.Þetta var stærsti skjálftinn á Nesjavöllum frá 1998 og fannst vel á suðvesturhorni landsins. „Skjálftavirkni er mjög algeng á þessu svæði og skjálftinn varð á þekktri jarðskjálftasprungu. Þannig að þetta er alla vega sá stærsti á þessari öld,“ segir Steinunn.Jarðskjálftar í Húsmúla fyrr í sumar gætu tengst skjálftanum í nótt.„Skjálftarnir sem urðu fyrr í sumar við Húsmúla, þeir gætu náttúrulega leitt til spennulosunar á öðrum stöðum n