Fluttur til Danmerkur eftir bruna í flöskumóttöku

Starfsmaður í flöskumóttöku Grænna skáta í Hraunbæ í Reykjavík skaðbrenndist á föstudaginn. Maðurinn hefur verið fluttur með alvarleg brunasár til Kaupmannahafnar til aðhlynningar.Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, staðfestir þetta og segir hug sinn vera hjá fjölskyldu mannsins.Lögregla var kölluð á vettvang en vill ekki staðfesta að málið sé til rannsóknar. Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi vill ekki tjá sig um málið sem hún segir harmleik.Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er ekki óvenjulegt að einstaklingar séu sendir í meðferð erlendis þegar tilvik er sjaldgæft eða krefst sérhæfðari meðferðar en býðst hér á landi.
Fluttur til Danmerkur eftir bruna í flöskumóttöku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd