Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir enga ástæðu fyrir Íslendinga til að afsala sér efnahagslegu sjálfstæði með inngöngu í ESB. Ísland hafi aðgang að helstu gæðum sem ESB í gegnum EES-samninginn og að nýsköpun eigi undir högg að sækja innan sambandsins. „Ég skil ekki af hverju við ættum að vera að útvíkka það til að taka við löstunum líka.“