Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir Donald Trump Bandaríkjaforseta eiga nokkrar leiðir út úr stríði Bandaríkjanna og Írans.Rót deilunnar er erfitt að leysa. Erlingur segir að Trump sé fastur í ákveðinni gildru með þrjá kosti sem allir eru vondir.Fyrsti kosturinn sé að auka hernaðaraðgerðir og jafnvel beita landhernaði. „Það mun hann heyra frá herforingjum sínum að er vond leið og ekki líklegt að ná góðri niðurstöðu pólitískt.“Annar kosturinn sé að þrengja efnahagslega að Íran, meðal annars með hafnbanni og viðskiptaþvingunum, og vona að úthald þeirra verði minna en heimshagkerfisins. „Það er líka ólíklegt. Eiginlega vænsti kosturinn fyrir Trump er að lýsa yfir sigri og stíga í burtu en það er heldur ekki vandalaus niðurstaða.“Erlingur ræddi ástandið í Mið-Austurlöndum í þættinu