Töluverð röð myndaðist við innritunarborð á Keflavíkurflugvelli í morgun þegar pallur í töskuflokkara bilaði.Einn 178 palla í töskuflokkara bilaði um klukkan sex í morgun þegar innritun stóð sem hæst. Þetta segir Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia. Bilunin stóð í um stundarfjórðung og á meðan voru töskur sendar fram hjá töskuflokkara í gegnum sérstærðarfarangur.Nú gengur allt sem skyldi að sögn Andra. Vegna þess hve bilunin stóð stutt voru engar seinkanir á flugum.Töluverðar tafir hafa orðið í vegabréfaeftirlitinu í Leifsstöð í sumar vegna nýs fyrirkomulags vegna ferðamanna utan Schengen-svæðisins.RÚV / Brynjólfur Þór Guðmundsson