Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hefst í dag.Þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst en utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hugsuð fyrir þá kjósendur sem geta ekki kosið á kjördag eða sótt kjörfund.Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Hlíðasmára 1 í Kópavogi. Í dag og til föstudags er opið frá klukkan 10 til 16. Um Verslunarmannahelgina er lokað en frá 4. til 23. ágúst verður opið frá klukkan 10 til 18. Síðustu daga að kjördegi, 24. til 28. ágúst, er opið frá klukkan 10 til 21.Á kjördag, laugardaginn 29. ágúst, verður opið frá klukkan 10 til 17 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.Á ísland.is má sjá lista yfir staðsetningu og opnunartíma þar sem hægt er að