Erfitt er að segja til um hvort stór jarðskjálfti sem mældist við Nesjavelli í nótt sé fyrirboði um eitthvað meira. Þetta segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli þegar klukkuna vantaði tuttugu og fjórar mínútur í eitt í nótt. Nákvæm upptök jarðskjálftans voru þrjá og hálfan kílómetra norðaustur af Skeggja á Hengli.Þetta var stærsti skjálftinn á Nesjavöllum frá árinu 1998 og fannst vel á suðvesturhorni landsins. Lítil eftirskjálftavirkni hefur mælst.„Skjálftavirkni er mjög algeng á þessu svæði og skjálftinn varð á þekktri jarðskjálftasprungu. Þannig að þetta er allavega sá stærsti á þessari öld,“ segir Steinunn.Jarðskjálftar sem urðu í Húsmúla fyrr í sumar gætu tengst skjálftanum í nótt.„Skjálftarnir sem ur