Það verða mikil átök 29. ágúst nk um það hvort við Íslendingar ætlum að halda sjálfstæði okkar eða ekki. Íslendingar gengu til kosninga 21.-23. maí 1944 til að skera úr um hvort Ísland yrði áfram nýlenda frá Dönum eða sjálfstæð þjóð. Eins og flestir vita þá greiddu 99,5% Íslendinga atkvæði með sjálfstæði. Haldin var mikil sigurhátíð á Þingvöllum 17. júní 1944 og þorri Íslendinga mætti þar sem stofnun lýðveldis á Íslandi var samþykkt.