Ekki verður malbikað frá þjóðveginum niður að bryggjunni á Brjánslæk í sumar eins og til stóð. Þetta staðfestir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar hjá Vegagerðinni. Ferjan Baldur siglir frá Brjánslæk á sunnanverðum Vestfjörðum til Stykkishólms með viðkomu í Flatey.