Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli, 36 mínútur yfir miðnætti. Hann fannst vel á suðvesturhorni landsins. Fréttastofu hafa borist tilkynningar frá fólki víða að af höfuðborgarsvæðinu sem fann skjálftann. Hann fannst einnig vel í útvarpshúsinu við Efstaleiti.Nákvæm upptök jarðskjálftans voru 3,5 kílómetrum norðaustur af Skeggja á Hengli. Minni háttar eftirskjálftavirkni hefur fylgt. GESTUM ION ADVENTURE NOKKUÐ BRUGÐIÐ Skammt frá upptökum skjálftans stendur hótelið ION Adventure. Michał Wilk, næturvörður í móttöku hótelsins, segir gestum hafa verið nokkuð brugðið. Nokkrir komu út af herbergjum sínum til að kanna hvað hefði gerst. Wilk segir að þó að skjálftinn hafi verið kraftmikill þá sýnist honum ekki sem neitt tjón hafi orðið, að öðru leyti en að myndir duttu niður úr