Vindorkumannvirki krefjast umfangsmikillar vegagerðar í ósnortnu heiðalandi, segir formaður Landverndar. Í meðmælagöngum Landverndar með heiðalandi er gengið á staði þar sem hugmyndir hafa komið fram um að reisa vindaflsvirkjanir.„Hér er Fjarðarorka með fimm svæði þar sem til stendur að byggja vindmyllur á og svo Zephyr við Klaustursel. Þetta er allt saman sjáanlegt héðan,“ sagði Þorgerður María Þorbjarnardóttir um Múla í Fljótsdal.Þangað gekk hópur á vegum Landverndar í vikunni í einni af meðmælagöngum félagsins. Þær bera heitið Heiðar í háska og Þorgerður segir tilganginn að mæla með ósnortnu heiðalandi.„Við viljum bara sýna fólki hvað það er ótrúlega margt sem er verið að skoða og við viljum að fólk átti sig á því hvaða áhrif þetta getur haft í þeirra nærumhverfi,“ bætir Þorgerður við.H