Tveir drepnir í skotárás á matarhátíð í Seattle

Lögreglubílar á vettvangi í Seattle.AP / Lindsey WassonTveir voru drepnir og fimm særðust í skotárás á matarhátíð í Seattle í Bandaríkjunum. Tveggja ára gamalt barn er í hópi særðra. Árásin var gerð í námunda við Geimnálina, eitt þekktasta kennileiti borgarinnarLögreglan rannsakar skotárásina og hefur beðið fólk um að halda sig fjarri. Seattle Center er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar var matarhátíðin Bite of Seattle í fullum gangi þegar árásin varð. Hún dregur árlega að sér hundruð þúsunda gesta.Fréttin var uppfærð með upplýsingum um fjölda fórnarlamba.
Tveir drepnir í skotárás á matarhátíð í Seattle

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd