Öflugur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorni landsins 36 mínútum eftir miðnætti. Samkvæmt fyrstu mælingum var hann 4,1 að stærð og á 7 kílómetra dýpi. Staðsetning skjálftans samkvæmt sjálfvirkum mælingum er örskammt frá Nesjavallavirkjun, norður af fjallinu Hengli og austan við Dyrafjöll, skammt suðvestur af Þingvallavatni. Hann var því miðja vegu milli Reykjavíkur og Selfoss.