Olíuverð á niðurleið eftir tvær árásarlausar nætur í Íran

Dísil- og bensíndælur.EPA / HANNIBAL HANSCHKEVerð á Brent-norðursjávarolíu féll um 5,56% við opnun Asíumarkaða á mánudagsmorgun. Verð á tunnunni fór niður í $91,38. Verðið á West Texas Intermediate-hráolíu lækkaði sömuleiðis skarpt eða um 5,46%, niður í $84,43 á tunnuna.Bandaríkin hafa ekki gert árásir á Íran undanfarnar tvær nætur. Það hefur kveikt vonarneista markaðsaðila um að viðræður milli íranskra og bandarískra stjórnvalda um frið séu hafnar.
Olíuverð á niðurleið eftir tvær árásarlausar nætur í Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd