Nutu sólar og sílaveiða við Hvaleyrarvatn

Meðal þess sem gestir við Hvaleyrarvatn skemmtu sér við í dag var að halda afmælisfögnuð. Margir veiddu síli og veiðarfærin ýmist fata eða háfur og Eiríkur Skúli Haraldsson var á staðnum með Maríu Friðriku Haraldsdóttur ömmu sinni, sem hafði ekki komið að Hvaleyrarvatni í mörg ár.„Það er bara ógeðslega gott veður hérna,“ sagði Eiríkur um veðurblíðuna.Þau Ísabella Nótt, Benedikt Logi og Viktoría Sól Hjörleifsbörn settu bát á flot og reru um vatnið. Þau sögðu róðurinn ganga vel, en hann gæti reynst erfiður ef róið væri lengi.
Nutu sólar og sílaveiða við Hvaleyrarvatn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd