Á fjórða hundrað þúsund manns hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógareldanna sem þar hafa geisað undanfarna daga.Mikill vindur og hiti hefur gert slökkviliðsmönnum erfitt fyrir að ná stjórn á eldunum, sem eru orðnir með þeim stærstu sem skráðir hafa verið í ríkjunum tveimur. Íbúar og ferðafólk hafa flykkst í hjálparmiðstöðvar sem settar hafa verið upp nálægt þeim svæðum og bæjum sem þurft hefur að rýma undanfarna daga.Íbúar lifa í mikilli óvissu og vita ekki hvenær eða hvort þeir komist aftur heim til sín.„Þetta er mjög uggvænlegt því við vitum ekki hvenær við megum fara heim, hvort við komumst heim eða í hvaða ástandi heimilið verður,“ sagði Joana Leonor, sem dvelur í fjöldahjálparstöð eftir að hafa þurft að yfirgefa heimili sitt.