Dómsmálaráðherra segir ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að „malla“ árunum saman í sambandi við áfengisverslanir. Staðan sé hvorki góð fyrir stjórnvöld né lögreglu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Málið sé hinsvegar rammpólitískt og mjög skiptar skoðanir séu um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum.