Tíu til fimmtán þúsund manns söfnuðust saman á Pariser Platz í miðborg Berlínar um hádegisbilið í dag til að minnast fórnarlamba voðaverkanna í Gleðigöngunni í gærkvöld. Borgarbúar eru slegnir yfir þessum atburðum en þetta er ekki í fyrsta skipti sem álíka árásir hafa átt sér stað í Berlín og annars staðar í Þýskalandi. Samkoman við Brandenborgarhliðið hafði þegar verið skipulögð út af öðru og gleðilegra tilefni en dagskránni var breytt í snatri.Maðurinn sem talinn er vera höfuðpaur voðaverkanna var skotinn til bana af lögreglumönnum í eftirmiðdaginn eftir að hafa skotið að þeim. Ein kona er látin eftir árásina og um þrjátíu eru særð. Þýsk stjórnvöld lýsa atburðinum sem hryðjuverkaárás.