Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar eru búnir að hafa í nógu að snúast í kvöld við leit og björgun.„Það eru búin að vera frekar snúin og krefjandi verkefni í gangi og þau komu öll á sama tíma,“ segir Margrét Gunnarsdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.Óskað var eftir aðstoð vegna einstaklings sem slasaðist illa í göngu á Fjalljökli og fékk opið beinbrot. Aðstæður á vettvangi reyndust nokkuð krefjandi af því að jökullinn er svo sprunginn. Björgunarsveitin Kári í Öræfum kom að aðgerðinni. Göngumanninum var komið niður og í sjúkrabíl.Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug síðan til móts við sjúkrabílinn, sótti göngumanninn og flutti til Reykjavíkur. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir það.Nokkrar björgunarsveitir komu að björgunaraðgerð í Emstrum vegna einst